
Besta sætið
Besta sætið er hlaðvarp í þróttadeildar Sýnar . Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Pick up right where you left off
- Resume on any device
- Progress saved on every episode
- Plus every other Pro feature
From €2.49/month
Episodes
17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll
Sep 17, 2026 · 26m
Resume with ProÞað er enn og aftur krísa hjá Man. Utd. Kunnuglegt stef síðustu ára þrátt fyrir bjartsýni í sumar. Svo ræðir Besta sætið af hverju Íslendingar virðast ekki vilja koma og horfa á sitt lið spila á Laugardalsvelli?
Alfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg
Sep 16, 2026 · 26m
Resume with ProÁ rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Útlitið var ekki bjart...
16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina
Sep 16, 2026 · 28m
Resume with ProKjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en þar fer hann yfir ástæður þess af hverju hann sé orðinn aðstoðarþjálfari Álftaness. Liðsins sem hann þjálfaði síðustu ár. Einnig ræðir Kjartan um Bestu deildina og nýjan feril í pólitíkinni.
15. sept. - Víkingar vilja fagna í Vesturbænum
Sep 15, 2026 · 19m
Víkingar eru með níu putta á Íslandsbikarnum og Blikar mæta í Úlfarsárdalinn í kvöld. Hugsanlega að glíma við bikarþynnku. Óli Óli er meiddur hjá Grindavík sem er búið að fá Pargo og svo er spurning hvort Tottenham nái loksins að skora í kvöld.
Dagný Brynjars: Þriggja barna fótboltakona og sendiherra West Ham
Sep 15, 2026 · 19m
Dagný Brynjarsdóttir er byrjuð að spila fótbolta á ný, fimm mánuðum eftir að hafa fætt sinn þriðja son. Hún er orðin 35 ára og viðurkennir að hún sé óviss um framhaldið á ferlinum, sem og með landsliðinu, eftir langan og farsælan feril. Hún heldur þó öllu opnu. Í viðtali við Vísi fer Dagný um víðan völl. Hún er flutt heim til Íslands og lék með Selfossi í Lengjudeildinni í lok sumars, og vill...
11. sept - Bikarhelgi og baráttan um Manchester
Sep 11, 2026 · 23m
Það er pressa á Blikum í úrslitaleik kvöldsins og það kemur nýtt nafn á kvennabikarinn á morgun. Besta deildin heldur áfram eftir skiptingu og baráttan í neðri hlutanum er hörð. Baráttan um Manchester er svo aðalleikurinn í enska þessa helgina.
10. sept - Getur einhver stöðvað Barcelona?
Sep 10, 2026 · 25m
Yfirreið yfir Meistaradeildina þar sem Barcelona og PSG líta hrikalega vel út. Man. Utd stígur aftur á stóra sviðið í kvöld. ÍBV fær Kana í handboltanum og umspilið í Lengjunni er galopið.
9. sept - Er Mourinho enn nógu góður?
Sep 9, 2026 · 26m
Jose Mourinho er mættur með látum í Meistaradeildina á nýjan leik. Liverpool á risaleik í Meistaradeildinni í kvöld á meðan Arsenal fer til Ítalíu. Umspilið í Lengjunni hefst í kvöld og svo er NFL-deildin að fara af stað með stórleik.
8. sept - Meistaradeildin fer loksins í gang
Sep 8, 2026 · 19m
Það er hátíðisdagur því Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld. Við hitum vel upp fyrir kvöldið þar sem Jose Mourinho snýr aftur með Real Madrid í keppnina og það með liði sem hann þjálfaði áður.
7. sept - Arsenal með langbesta liðið
Sep 7, 2026 · 22m
Arsenal sýndi mátt sinn og megin í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Svo gerum við upp Bestu karla en Víkingar eru með pálmann í höndunum og Keflavík verður í efri hlutanum. Valur og Stjarnan munu spila í neðri hlutanum. Mikill skellur fyrir bæði félög.
4. sept - Risahelgi í boltanum
Sep 4, 2026 · 26m
Lokaumferð deildarkeppni Bestu karla, lífsbaráttulaugardagur í Lengjunni og enski boltinn. Það þarf ekki að standa upp úr sófanum um helgina.
3. sept - Handboltinn rúllar af stað í kvöld
Sep 3, 2026 · 23m
Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Haukum og Val er spáð toppsætunum. Stjarnan heldur áfram að spila í Miðgarði og svo rennum við yfir bestu kaupin í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
2. sept - Uppgjör á stórleik KR og Víkings
Sep 2, 2026 · 24m
Risaleikur KR og Víkings í gær er eðlilega í brennidepli í þætti dagsins. Rúmlega 4.000 manns mættu á leikinn sem hófst klukkan 17.30 á þriðjudegi. Víkingur er með pálmann í höndunum eftir leikinn.
1. september - Leikur ársins á Meistaravöllum
Sep 1, 2026 · 23m
Það er allt á suðupunkti fyrir stórleik KR og Víkings í Bestu deild karla. Skemmdarverk unnin í skjóli nætur hafa kynt bálið enn frekar. Besta sætið hitar vel upp fyrir leikinn og spáir aðeins í spilin í enska boltanum.
28. ágúst - Man. City verður meistari
Aug 28, 2026 · 28m
Það er lítil bjartsýni fyrir landsleik kvöldsins í körfunni enda við ofurefli að etja. Handboltinn fer að rúlla af stað og Val er hvorki spáð titli í karla- né kvennaflokki. Það eru stórir leikir í Bestu deild karla og svo heldur enski boltinn áfram að rúlla.
27. ágúst - Eini stuðningsmaður Zirkzee fundinn
Aug 27, 2026 · 23m
UEFA ætlar að draga Infantino fyrir dómstóla, Víkingar spila um hálfan milljarð, Freyr blómstrar í Noregi og maður sem elskar knattspyrnumanninn Joshua Zirkzee í þætti dagsins.
26. ágúst - Mun Arsenal valta yfir deildina?
Aug 26, 2026 · 22m
Íþróttafréttamenn lélegir í golfi, sprungið dekk í Þakgili og umræða um enska boltann og meinta yfirburði Arsenal.
David Winnie: Sigrar með KR, fótbolti Óskars Hrafns og íþróttalögfræðin
Aug 14, 2026 · 11m
Skotinn David Winnie var hér á Íslandi um fjögurra ára skeið frá 1998 til 2001 er hann lék með og þjálfaði svo karlalið KR í fótbolta. Hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótið árið 1998 og hjálpaði KR svo að enda 30 ára bið eftir Íslandsmeistaratitli er liðið varð tvöfaldur Íslandsmeistari á 100 ára afmælisárinu 1999. Hann á íslenska konu og kemur reglulega hingað til lands með tvo henni og...
Björn Berg: Áhyggjur af framtíð fjármála fótboltans
Aug 14, 2026 · 13m
Endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið Deloitte gaf út skýrslu í sumar þar sem áhyggjum er lýst yfir vegna heilbrigðis fjármála innan fótboltans til lengri tíma. Tekjur fara hækkandi víðast hvar, þá sérstaklega hjá stærri félögum, en á sama tíma vaxa skuldir gríðarlega. Samkvæmt skýrslunni sé of mikið hugsað til skamms frekar en lengri tíma. Þá kom fram í skýrslunni að taprekstur enskra...
29. júlí - Infantino að gera allt vitlaust
Jul 29, 2026 · 23m
Gianni Infantino, forseti FIFA, vill hleypa fjárfestum að kjötkötlum FIFA og það ætlar hann að gera með því að bjóða knattspyrnusamböndum gríðarmikla peninga. Óhætt er að segja að allt sé vitlaust út af þessu máli sem ekki sér fyrir endann á.
24. júlí - Allt á uppleið hjá Val
Jul 24, 2026 · 26m
Valsmenn unnu loksins leik, og það gegn sterku liði í Sambandsdeildinni, Stjarnan vann líka í Evrópu en Vestri ekki. Undanúrslit eru fram undan í Mjólkurbikar kvenna og spennandi leikir í Bestu deild karla.
23. júlí - Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar
Jul 23, 2026 · 19m
Vestramenn eru mættir til Lettlands, Valsmenn taka á móti Blikabönum frá Bosníu og Stjarnan tekur nýflengd á móti liði frá Finnlandi í Evrópueinvígum dagsins. Þetta og fátt fleira var rætt í Besta sætinu. Fjölþjóðlegur og fjörugur leikur í Lettlandi endar líklega með tapi Vestra gegn RFS. Valur er með ellefu leikmenn á meiðslalistanum og einn sem ætti enn þá að vera þar en ætlar að spila gegn...
22. júlí - EuroVikes, vonlaus Valur og Arnar í stuði
Jul 22, 2026 · 22m
Víkingar vinna enn heimaleiki sína í Evrópukeppni þökk sé Nikolaj Hansen. Valskonur eru afskaplega slakar og markasúpa var í Bestu deild kvenna. Svo náði Afturelding sögulegum árangri. Besta sætið fór yfir sviðið. Ágúst Orri Arnarson og Valur Páll Eiríksson ræddu málefni dagsins í Besta sætinu. Nikolaj Hansen var blár og marinn en var samt hetjan, annan Evrópuleikinn í röð í Víkinni. 18 mörk voru...
21. júlí - Besta uppgjörið
Jul 21, 2026 · 25m
Henry Birgir og Valur Páll gera upp síðustu umferðina í Bestu deild karla.
20. júlí - HM uppgjör
Jul 20, 2026 · 21m
Frábæru HM lauk í gær með sigri Spánverja á slökum og grófum Argentínumönnum. Henry Birgir og Valur Páll gera upp mótið í þætti dagsins.