
Besta sætið
Besta sætið er hlaðvarp í þróttadeildar Sýnar . Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Pick up right where you left off
- Resume on any device
- Progress saved on every episode
- Plus every other Pro feature
From €2.49/month
Episodes
17. júlí - Barnaleg mistök, markasjúkir FH-ingar og risastór helgi
Jul 17, 2026 · 31m
Resume with ProNóg var að ræða í Besta sætinu þennan föstudaginn. Evrópuleikir, Bestu deildirnar, Opna breska, Formúla 1 og fleira til. Stjarnan og Vestri eiga bæði annað Evrópuverkefni framundan þrátt fyrir að hafa mistekist að sigra í leikjum sínum í gær og Íslendingaliðið í Færeyjum fór áfram eftir ótrúlega atburðarrás. FH-ingar eru skemmtikraftar Bestu deildar kvenna og halda áfram að raða inn mörkum. Gott...
16. júlí - Tuchel á skilið launalækkun og gleðilegan gluggadag
Jul 16, 2026 · 26m
Resume with ProÁhuginn á Opna breska meistaramótinu í golfi stóreykst eftir tap Englands gegn Argentínu á HM. Nóg er að gera í pappírsvinnu við að ganga frá öllum félagaskiptunum sem hafa verið tilkynnt en hvaða framherja munu Víkingar sækja og hvenær kemur Aron Einar Gunnarsson til Þórs?
15. júlí - Yamal sá svalasti og lausnin við Messi fundin
Jul 15, 2026 · 30m
Resume with ProLamine Yamal er líklega svalasti fótboltamaður sögunnar og einfalda lausn má finna við vandræðunum sem Lionel Messi veldur. Daníel Hafsteinsson er samt helsta hetja gærkvöldsins. Undanúrslit HM og Evrópuleikur Víkings voru í aðalhlutverki en margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu. Þar komu einnig við sögu trúlofun í takkaskóm, snemmbúin ævisaga Eusebio og sundferð á Blönduósi svo...
13. júlí - Valsmenn í vandræðum og óvænt félagaskipti
Jul 13, 2026 · 26m
Besta sætið hafði mörg mörk að ræða í dag, nánar tiltekið 21 mark í 4 leikjum Bestu deildar karla í gær. Vonandi sést eitthvað svipað á nýja Kópavogsvellinum í kvöld, annað en í síðasta leik Breiðabliks og Keflavíkur. Helstu álitamál helgarinnar á HM voru tekin fyrir; boltinn sem fór eða fór ekki í myndavél og rauða spjaldið sem Sviss fékk frá VAR. Þetta og margt fleira var rætt í þætti dagsins...
10. júlí - Sýður á Sigga Helga
Jul 10, 2026 · 28m
Víða var komið við í Besta sætinu þennan ágæta föstudag. Stefán Árni dreif sig beint í sumarfrí eftir þátt dagsins. Þeir Valur Páll Eiríksson, Andri Broddason og Stefán Árni Pálsson fóru yfir íþróttamál dagsins í þættinum en Stefán var allur á iði þar sem hann er á leið í sumarfrí. Erik Sandberg var til umræðu en hann er félagi Erling Haaland, framherja norska landsliðsins, og þeir gerðu saman...
9. júlí - Gleðileg jól og langt hlé á enda
Jul 9, 2026 · 23m
Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM.
8. júlí - Hættulegur völlur í Fossvogi og afleiðingar Balogun-málsins
Jul 8, 2026 · 23m
Leikmenn Víkings eru látnir spila á „ónýtum og hættulegum“ gervigrasvelli en mega vera stoltir af frábærum 1-0 sigri gegn ungversku meisturunum. Átta liða úrslitin eru klár á HM og Blikar búnir að tryggja sér mikinn liðsstyrk.
7. júlí - Megas á bar í Boston og Nablinn hress í Eyjum
Jul 7, 2026 · 24m
Það var af nægu að taka í Besta sætinu eftir líflegan dag á HM í fótbolta, þar sem Cristiano Ronaldo stimplaði sig út og Belgar rúlluðu yfir Bandaríkin, og að lokinni 13. umferð Bestu deildar karla. Talið barst þó einnig að ýmsu öðru.
6. júlí - Fáránleg ákvörðun FIFA góð fyrir mótið
Jul 6, 2026 · 29m
Í Besta sætinu sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. Farið var yfir torsóttan sigur Englands við aðstæður sem ekki allir skilja hve erfiðar voru, og sigur Noregs gegn óspennandi liði Brasilíu. Golf, Besta deildin og leið Íslands á HM í körfubolta var sömuleiðis á meðal þess sem rætt var um á þessum...
3. júlí - Martröð markvarðar og VAR-veisla í Toronto
Jul 3, 2026 · 29m
Tveir góðir gestir settust í Besta sætið á þessum fína föstudegi. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, og Magnús Jochum Pálsson, menningarblaðamaður á Sýn, ræddu íþróttamál dagsins við Val Pál Eiríksson. Ótrúlegur leikur Þórs og KR á Akureyri var til umræðu sem og sigur Víkings á KA. Landsleikur gærkvöldsins við Ítala bar á góma og samhliða því feimni Íslendinga við þjóðsöng okkar...
2. júlí - Þýskt þrot
Jul 2, 2026 · 31m
Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu deildina og landsleik kvöldsins.
1. júlí - Rómans Stefáns Árna og Deschamps
Jul 1, 2026 · 24m
HM var mikið til umræðu í Besta sætinu í dag. Besta deildin kom við sögu sem og stór tíðindi úr Bónus deildinni í körfubolta. Valur Páll Eiríksson, Stefán Árni Pálsson og Andri Broddason ræddu málin í Besta sætinu í dag. HM-leikir gærkvöldsins voru til umræðu sem og þeir sem fram undan eru í dag. Tíðindi bárust úr Garðabæ í dag hvað þjálfaramálin í fótboltanum varðar og einnig bárust...
29. júní: Þjálfaraskipti hjá Val og mikilvægir leikir hjá landsliðinu
Jun 29, 2026 · 19m
Í Besta sætinu í dag er farið yfir stórtíðindin af Hlíðarenda. Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta og nú þegar er eftirmaður hans fundinn. Fleiri tíðindi úr Bestu deildinni, mikilvægt verkefni karlalandsliðsins í körfubolta sem og HM þar sem að útsláttarkeppnin er hafin. Allt saman í Besta sætinu.
26. júní: Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður?
Jun 26, 2026 · 29m
Það var við hæfi að opna þáttinn á slagara með Sálinni, Stebbi Hilmars sextugur og gír í mönnum. Nóg að ræða í dag. Er rígurinn milli Blika og Víkinga dauður? Víkingar, í hægagangi völtuðu yfir Blikana í gær og liðin mætast aftur á sunnudaginn. Línur eru teknar að skýrast á HM og styttist í útsláttarkeppnina. Umferðin framundan í Bestu deildinni, Formúla 1, glæný tíðindi af landsliðsmanni Íslands...
24. júní: Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi?
Jun 24, 2026 · 18m
Besta sætið mætir alltaf funheitt aftur. Sumarfílingur í hópnum og nóg að ræða. Toppbaráttan í Bestu deild kvenna í fótbolta veldur ekki vandræðum. Það voru vendingar fyrir stutt hlé í deildinni sem farið verður yfir. Þá eru leikar teknir að æsast á HM í fótbolta.
22. júní: Besta lið sögunnar?
Jun 22, 2026 · 25m
Víkingar virðast óstöðvandi í Bestu deild karla og KR-ingar þurfa að vinna Skagamenn í kvöld til að halda lífi í titilbaráttunni. FH, Þór, KA og Stjarnan eru hins vegar í ansi slæmum málum. Martin Hermannsson er Þýskalandsmeistari eftir ótrúlega endurkomu og Hollendingar fljúgandi á HM.
19. júní: Er hann samt íþróttamaður ársins?
Jun 19, 2026 · 22m
Í Besta sætinu var farið yfir frumraun Íslendings á Opna bandaríska mótinu í golfi karla, HM í fótbolta og komandi umferð í Bestu deild karla. Freyr Alexandersson er orðinn nýr þjálfari Rosenborgar og strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu fá stuðning í Þýskalandi.
18. júní: Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open
Jun 18, 2026 · 21m
Stór dagur í íþróttasögu Íslendinga í dag. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þátttöku á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld, fyrstur Íslendinga. Við förum yfir það sem og HM í fótbolta þar sem að England mætir af fídómskrafti til leiks. Stelpurnar okkar eru með gullið tækifæri á að tryggja sér sæti á HM í fótbolta í BRASILÍU á næsta ári og spennan er mikil í Mjólkurbikar kvenna. Átta liða...
16. júní - Drónasvif yfir best rekna klúbbi landsins
Jun 16, 2026 · 24m
Það er risakvöld í Bestu deildinni þar sem KR-ingar heimsækja Víkinga í einkar veglegri útsendingu þar sem Nablinn verður á svæðinu og drónamyndavél fangar stemninguna á uppseldum toppslag. HM í fótbolta, Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska, og gleðifréttir Garðbæinga voru einnig til umræðu í Besta sætinu.
15. júní - Verður Þjóðarhöllin tilbúin fyrir HM 2031?
Jun 15, 2026 · 26m
„Loksins, loksins“ hrópuðu margir íþróttaáhugamenn í dag og Besta sætið þar með talið. Teikningar fyrir nýja Þjóðarhöll hafa verið opinberaðar en athygli vekur að hvergi eru verklok áætluð. Hvenær verður þessi nýja höll eiginlega tilbúin? Margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu. HM er í fullum gangi og fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn kemur frá Túnis. Fyrsti þjálfarinn til að...
12. júní - Lélegasti framherji mótsins strax fundinn
Jun 12, 2026 · 25m
HM hófst í gær og við ætlum bara að hafa gaman að því, allavega meira gaman en sjónvarpsmenn Suður-Afríku. Lélegasti framherji mótsins er strax fundinn og Suður-Kóreuprinsinn kom sem kallaður. HM var ekki það eina sem rætt var í þætti dagsins af Besta sætinu. Stærsti hnefaleikaviðburður ársins er fram undan í kvöld. Um helgina er heill haugur af viðburðum, heil umferð í Bestu deild kvenna og...
11. júní - Gaslýsingar, starfsöryggi og heimskt lið
Jun 11, 2026 · 22m
Stóri HM-dagurinn er í dag. Mótið hefst í kvöld. Stjarnan sleppti sínu eina haldreypi og New York Knicks unnu heimskasta körfuboltalið sögunnar.
10. júní - Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi?
Jun 10, 2026 · 24m
Landsliðin okkar spiluðu bæði við heimsmeistara í gær og máttu sín lítils. Frammistaða stelpnanna okkar olli vonbrigðum. Strákarnir gerðu nákvæmlega sömu mistök og síðasta leik.
9. júní - Óttast slys í kvöld
Jun 9, 2026 · 22m
Ísland gegn heimsmeisturum er þema kvöldsins en Gunnlaugur Árni Sveinsson átti sviðið í gær. Sá drengur er á leið á US Open. Magnað afrek. Svo er það úrslitaeinvígi NBA og engin Ungverjagrýla á HM í handbolta. Takk.
8. júní - Kaldur sviti er Eriksen féll til jarðar
Jun 8, 2026 · 23m
Hjartaáfall Christian Eriksen, landsliðin okkar að mæta heimsmeisturum og stórmannlegir Víkingar framlengja við Ingvar er helst í brennidepli í þætti dagsins.