
Besta sætið
Besta sætið er hlaðvarp í þróttadeildar Sýnar . Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Pick up right where you left off
- Resume on any device
- Progress saved on every episode
- Plus every other Pro feature
From €2.49/month
Episodes
20. okt - Grindjánar pakksaddir, Blikastelpur bestar og bilun í Bakgarðinum
Oct 20, 2026 · 23m
Resume with ProÖmurleg byrjun á körfuboltavetrinum hjá Íslandsmeisturum Grindavíkur, Breiðablik tók af okkur úrslitaleikinn í Bestu kvenna, ótrúlegt bakgarðshlaup, hræðileg meðferð á Jalen Hurts og Meistaradeildin.
19. okt - Kane lentur, enski, Besta og Bakgarðurinn
Oct 19, 2026 · 21m
Resume with ProAf nægu að taka í dag. Þór getur fellt KA, United getur ekkert í enska, Kane lentur og gæti spilað fyrir Grindavík í kvöld og ótrúlegir Bakgarðshlauparar.
16. okt - Óvænt lausir miðar á HM og fótbolti í fárviðri
Oct 16, 2026 · 22m
Resume with ProLeikir helgarinnar í Bestu deildunum gætu orðið skrautlegir enda hljómar spáin upp á mikið rok og búið að færa fjölda leikja til. Það gæti ekki dugað til að sleppa við veðurofsann. Bakgarðurinn er einnig í beinni á Vísi og verður áhugavert að sjá okkar bestu bakgarðshlaupara berjast við vindinn. Viðtalið íþróttadeildar við Arnar Gunnlaugsson ber einnig á góma og svo kom í ljós að það eru til...
Arnar Gunnlaugs ræðir agabrot landsliðsmanna
Oct 16, 2026 · 33m
Agabrot landsliðsmanna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í landsliðsþjálfaratíð Arnars Gunnlaugssonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka umrædda leikmenn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægilega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum.
15. okt - Arnar Gunnlaugsson opnar sig og hvað er Inga Sæland að spá?
Oct 15, 2026 · 16m
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fer ítarlega yfir agabrot íslenska landsliðsins í viðtali við íþróttadeild Sýnar í dag. Besta sætið fer yfir málið, gerir upp Meistaradeildina og skammar Ingu Sæland fyrir að leyfa ekki atvinnuhnefaleika á Íslandi.
14. okt - Heimir sagður á leið til ÍA
Oct 14, 2026 · 23m
Heimir Guðjónsson er sagður vera næsti þjálfari ÍA og svo gerði Lisandro Martinez, leikmaður Man. Utd, allt vitlaust eftir leik gegn Atletico í gær. Stelpurnar okkar afgreiddu svo Króatíu með miklum glæsibrag.
13. okt - Meistaradeildin, landsleikur, formúla og ballet... já, ballet
Oct 13, 2026 · 19m
Það er svo sannarlega víða komið við í Besta sætinu í dag. Stelpurnar okkar spila landsleik á eftir og eiga að klára það verkefni. Man. Utd fær risaverkefni í Meistaradeildinni og Hákon Arnar heimsækir Arsenal. Formúlan til Afríku og svo er rætt um balletviðburð ársins.
12. okt - Áhugalausir Valsmenn og endalaust þrot hjá Man. Utd
Oct 12, 2026 · 26m
Enski boltinn, Besta deildin, NFL og körfubolti í þætti dagsins.
9. okt - Agabrot landsliðsmanna og boltinn rúllar á ný
Oct 9, 2026 · 20m
Agabrot leikmanna karlalandsliðsins hafa verið í fréttum í dag en lítið kemur um málið frá KSÍ. Landsliðsþjálfarinn ætlar ekki að tjá sig strax. Enski boltinn og Besta deildin fara aftur í gang um helgina og því fagna mjög margir.
8. okt - Upphitun fyrir Bónus karla
Oct 8, 2026 · 24m
Bónus-deild karla hefst í kvöld. Besta sætið vill mæk á dómarana og enginn virðist vita hvar DeAndre Kane er.
7. okt - Uppgjör á slökum leik gegn Eistum
Oct 7, 2026 · 24m
Ísland gerði markalaust jafntefli gegn Eistlandi ytra í gær. Leikurinn var arfaslakur af hálfu íslenska liðsins. Lionel Messi kvaddi svo argentínska landsliðið formlega í gær.
6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin
Oct 6, 2026 · 24m
Ísland sækir Eistland heim þar sem toppsætið er undir. Sigur er líka mikilvægur upp á að komast á næsta stórmót. Sú staða er vel skoðuð og svo er stutt karaoke horn einnig í þættinum.
5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu
Oct 5, 2026 · 25m
Fókus dagsins er á landsleik Eistlands og Íslands sem fer fram á morgun. Það er krafa á sigur frá Besta sætinu. Heimir Hallgrímsson er farinn í langþráð frí eftir hasar síðustu daga. Bónusdeild karla hefst á fimmtudag og er hitað upp á Sýn Sport í kvöld.
2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus
Oct 2, 2026 · 26m
Landsleikur gegn Búlgaríu á morgun og Arnar Gunnlaugsson er varkár í yfirlýsingum. Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitlinum í körfu karla og fallið klárast í Bestu kvenna í kvöld.
1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóra
Oct 1, 2026 · 21m
Cristiano Ronaldo, Man. City og Heimir Hallgrímsson á matseðli dagsins.
30. sept - Man City og Lúxus í Lúx
Sep 30, 2026 · 27m
Það var nóg að fara yfir í Besta sætinu þennan miðvikudag. Landsliðið okkar vann góðan sigur á Lúxemborg og svaraði rækilega fyrir slæman leik gegn Eistum um helgina. Manchester City er þá á allra vörum. Á landsliðið að þurfa Gylfa Þór Sigurðsson til að halda liðinu gangandi? Það var í það minnsta allt annað að sjá til liðsins með hann innanborðs í gær. Hvar á maður svo að byrja á þessu...
29. sept - Pressa á Arnari
Sep 29, 2026 · 19m
Pressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í leik sem þarf að vinnast ef EM vonin á að lifa. Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Eiríkur Stefán Ásgeirsson fóru yfir sviðið á þessum ágæta þriðjudegi. Landsliðin okkar áttu sviðið þar sem bæði U21 árs liðið og A-landsliðið verða í...
28. sept - Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi
Sep 28, 2026 · 21m
Slakur landsleikur Íslands og havarí í kringum Írland, Ísrael og Manchester City bar hæst í Besta sætinu þennan mánudaginn. Valur Páll Eiríksson, Bjarki Sigurðsson og Sindri Sverrisson fóru yfir sviðið í þætti dagsins. Menn voru enn að jafna sig eftir slaka frammistöðu karlalandsliðsins í fótbolta á laugardaginn var en strákarnir okkar eru mættir til Lúxemborgar þar sem þeir geta svarað fyrir...
Rúnar Már Sigurjónsson: Sorgin að hætta, flakk um Austur-Evrópu, EM-gleðin og HM höggið
Sep 26, 2026 · 27m
Sauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur átt viðburðarríkan fótboltaferil sem tekur senn enda. Ferillinn dró hann víða um heim og hann kunni hvað best við sig austan tjaldsins í Rúmeníu og Kasakstan. Rúnar Már neyðist til að hætta vegna þrálátra meiðsla sem hafa áhrif á hans daglega líf og því fylgir ákveðið sorgarferli. Hann fer yfir ferilinn í ítarlegu viðtali við íþróttadeild Sýnar.
25.sept - Ekkert elsku mamma lengur
Sep 25, 2026 · 19m
Besta sætið var í landsliðsgír í dag enda spennandi helgi framundan fyrir íslenska karlalandsliðið sem hefur leik í Þjóðadeild UEFA á heimavelli á morgun. Ræddum líka frábæra leiki í Olís deildinni, Þjóðadeild og þau vandræði sem Valur er í. Ákveðin krísa á Hlíðarenda. Það og margt fleira í þætti dagsins. Góða helgi!
24. sept - Loksins bolti á innipúkadegi
Sep 24, 2026 · 19m
Það verður loksins hægt að horfa aftur á fótbolta á skjánum í kvöld og það á fyrsta haustlægðardegi ársins. Andri Broddason átti sérlega erfitt með haustlægðina þegar hann þurfti að labba alla leið út í bíl í morgunsárið á meðan aðrir löbbuðu og hjóluðu í vinnuna. Lægðin hafði sín áhrif á landsliðin okkar sem færðu sig úr Laugardalnum inn í hallir að æfa í dag. Kvennalandsliðið, U21 landsliðið...
23. sept - Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met
Sep 23, 2026 · 19m
Ákvörðun Arons Einars Gunnarssonar um að hætta í íslenska landsliðinu, varnarvandræðin sem landsliðsþjálfarinn virðist ekki vilja horfast í augu við og komandi leikur í Þjóðadeildinni voru til umræðu í Besta sætinu. Þar var einnig farið yfir leikina í Meistaradeild kvenna í fótbolta, þar sem fjöldi Íslendinga kom við sögu, og einvígin sem Breiðablik og FH hefja í dag í Evrópubikarnum.
22. sept - Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í
Sep 22, 2026 · 20m
Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson með ykkur í dag.
21. sept - Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka
Sep 21, 2026 · 22m
Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson gerðu upp risastóra íþróttahelgi sem er að baki. Rígur er að myndast í Bakgarðshlaupum, Þróttur komst í Bestu deildina, Víkingur varð Íslandsmeistari og óvænt úrslit á Englandi.
18. sept - Bikarar í boði og hvað gerir Steindi í Bakgarðshlaupinu?
Sep 18, 2026 · 25m
Rosaleg helgi í sportinu og nóg að fara yfir. Lengjudeildarúrslit, Víkingur getur orðið meistari í Bestu karla, Bakgarðshlaup með Steinda og enski boltinn.