Your choices on this site

We store a few things on your device so the radio works. Only if you agree, we also remember your settings and count how the site is used. We do not use advertising cookies today. “Marketing” is off unless you allow it: then a small script from the third-party service Metricool helps us understand visits from social media. You can change your mind at any time with Cookie settings at the bottom of every page. Cookie Policy

CatchliteRadio
Besta sætið cover art

Besta sætið

Besta sætið er hlaðvarp í þróttadeildar Sýnar . Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

A podcast cover with a progress bar showing where you stopped

Pick up right where you left off

  • Resume on any device
  • Progress saved on every episode
  • Plus every other Pro feature

From €2.49/month

Episodes

  • 24. nóv - Brjálaðir foreldrar á hliðarlínunni og Freysi á leið í enska boltann

    Nov 24, 2026 · 25m

    Resume with Pro

    Hegðun foreldra á krakkamótum er í brennidepli í dag. Freyr Alexandersson er líklega að taka við Swansea og svo rúllar Meistaradeildin aftur af stað.

  • 23. nóv - Verk fyrir höndum hjá Pochettino

    Nov 23, 2026 · 22m

    Resume with Pro

    Mauricio Pochettino fékk alvöru martraðarbyrjun sem þjálfari Man. Utd. Sá þarf að lyfta grettistaki til að bjarga þessu liði Man. Utd. Arsenal er skellihlæjandi á toppnum og Liverpool er á uppleið. Þjálfaramálin eru loksins að skýrast í Lengjudeild karla og NFL-hornið er á sínum stað í lokin.

  • 20. nóv - Breytist eitthvað með Pochettino og Valsari fór á vitlausan flugvöll

    Nov 20, 2026 · 23m

    Resume with Pro

    Mauricio Pochettino stýrir Man. Utd í fyrsta sinn um helgina og fær alvöru verkefni er Man. Utd sækir Liverpool heim. Valur tapaði naumlega á Egilsstöðum í Bónus deild karla í gær og hjálpaði ekki til að liðið var án Jelani Simmons sem fór á Keflavíkurflugvöll er hann átti að fljúga austur.

  • 19. nóv - Þreyttir körfuboltamenn eftir GTA nótt og ömurleg mynd um Madden

    Nov 19, 2026 · 24m

    Tölvuleikurinn GTA kom út í nótt og eflaust margir íþróttamenn sem vöktu lengi að spila. Það mun örugglega hafa einhver áhrif á þeirra leik. Til að mynda í Bónus deild karla í kvöld þar sem stórleikurinn er á milli Álftaness og Grindavíkur. Svo ræðum við aðeins um áhugaverða mynd um John Madden sem kom út í gær.

  • 18. nóv - Jói Berg lætur KSÍ heyra það og vandræði á ÍR í körfunni

    Nov 18, 2026 · 21m

    Jóhann Berg Guðmundsson sparaði ekki stóru orðin í garð KSÍ í gær og lét menn heyra það. Kvennalandsliðið í körfubolta náði sögulegum sigri, Heimir Hallgríms lifir af sem þjálfari Írlands og Herra ÍR yfirgefur uppeldisfélagið í körfunni.

  • 17. nóv - Ósammála um Víkingaklappið, Arnar fær einkunn og starfsöryggi Heimis

    Nov 17, 2026 · 23m

    Karlalandsliðið í fótbolta lauk keppni í Þjóðadeild karla þennan veturinn með góðum 3-0 sigri í gær þar sem goðsögn var kvödd. Þeir Henry Birgir, Stefán Árni og Valur Páll gerðu Þjóðadeildina upp sem og leik gærkvöldsins. Aðstaða blaðamanna í frostinu var til umræðu og frammistaða Arnars Gunnlaugssonar í starfi. Starfsöryggi Heimis Hallgrímssonar bar einnig á góma sem og töluvert fleira. Þáttinn...

  • 16. nóv - Í minningu Guðjóns Þórðarsonar og Aron Einar jafnar metið í kvöld

    Nov 16, 2026 · 24m

    Ísland spilar við Lúxemborg í Þjóðadeildinni í kvöld. Guðjóns Þórðarsonar verður minnst fyrir leik og Besta sætið rifjar upp magnaðan feril Guðjóns. Aron Einar Gunnarsson mun svo örugglega koma við sögu í kvöld og jafna landsleikjametið í sínum síðasta landsleik. Svo má ekki gleyma U21 sem ætlar að komast á stórmót í kvöld.

  • 9. nóv - Væll í Stjörnumönnum og Man. Utd í fallsæti

    Nov 9, 2026 · 27m

    Staðan í ensku úrvalsdeildinni er afar áhugaverð er deildin fer aftur í landsleikjafrí. Man. Utd mun sitja í fallsæti næstu daga á meðan Man. City er í frjálsu falli. Stjörnumenn kvarta yfir að fá ekki að æfa í hádeginu en fá enga vorkunn í Besta sætinu. Handboltalandsliðið fær hrós og NFL-hornið er á sínum stað.

  • Jökull Elísabetarson: Spennandi starf í Kópavogi og Halldór Árna þarf að hafa sig hægan

    Nov 6, 2026 · 17m

    Jökull Elísabetarson tók í dag við sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Jökull þekkir vel til í Kópavogi en hann var leikmaður liðsins sem vann fyrstu titla í sögu þess og varð bikarmeistari 2009 og Íslandsmeistari 2010. Hann þjálfaði þá annan flokk hjá liðinu og hóf sinn þjálfaraferil hjá venslafélaginu Augnabliki. Jökull hefur stýrt Stjörnunni undanfarin ár en var sagt upp á miðju...

  • 6. nóv - Jökull í Blika, Tufa í KA og KR með læti í körfunni

    Nov 6, 2026 · 25m

    Tíðindi á þjálfaramarkaði í dag. Jökull Elísabetarson tekinn við Blikum og Srdjan Tufegdzic tekur við KA væntanlega í næstu viku. KR vann stórslaginn á Álftanesi í gær og slökkti í ofpeppinu í garð Álftnesinga.

  • 5. nóv - Ronaldo kveður og getur KR unnið Álftanes?

    Nov 5, 2026 · 24m

    Cristiano Ronaldo tilkynnti í dag að hann hefði leikið sinn síðasta landsleik. Ótrúlegur 23 ára landsliðsferill hjá honum. KR sækir Álftanes heim í kvöld en bæði lið eru með fullt hús. Eitthvað þarf undan að láta.

  • 4. nóv - Skyldusigur í kvöld hjá strákunum okkar og áhugaverð ummæli hjá Arnari Gunnlaugs

    Nov 4, 2026 · 21m

    Landslið eru í brennidepli í dag. Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu eiga heimaleik í kvöld og svo var Arnar Gunnlaugsson að kynna hópinn hjá fórboltalandsliðinu. Man. Utd vann fótboltaleik og Meistaradeildin rúllar áfram í kvöld.

  • 3. nóv - Áhugaverð ummæli Teits krufin og vinnur Man. Utd loksins leik?

    Nov 3, 2026 · 27m

    Teitur Örlygsson var með áhugaverða yfirlýsingu um lið Álftaness í körfuboltanum fyrir helgi. Álit sem hefur skapað mikla umræðu og umtal. Besta sætið hellir sér í umræðuna. Svo fer Meistaradeildin aftur á fullt í kvöld og pressan er á Man. Utd.

  • Hólmar Örn Eyjólfsson: Vandræði Vals, bankahrun í West Ham og pabbi sem þjálfari

    Oct 31, 2026 · 42m

    Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals í fótbolta, hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir langan feril. Hólmar hóf ferilinn hjá HK hér á landi en fór ungur til West Ham á Englandi. Hann átti sín bestu ár í Rosenborg fyrir smá brölt í Ísrael og Búlgaríu áður en hann sneri aftur til Rosenborgar fyrir heimför. Hann var um tíma leikjahæsti U21 árs landsliðsmaður Íslands og var...

  • Andri Lucas Guðjohnsen um frábært gengi sitt hjá Blackburn og landsliðið

    Oct 30, 2026 · 13m

    Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið að slá í gegn hjá Blackburn enda hefur hann raðað inn mörkum og er næstmarkahæsti leikmaður enski Championship deildarinnar. Hann ræðir Guðjohnsen fárið í Blackburn, drauma fyrir framtíðina og íslenska landsliðið.

  • 30. okt - Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga?

    Oct 30, 2026 · 25m

    Emil Atlason er að fara til Fram þar sem hann hittir fyrir sinn gamla þjálfara, Rúnar Kristinsson. Magnús Már má ekki fara til Breiðabliks og spurning hvað mamma hans, Hanna Símonardóttir, segir við því. Man. Utd þarf að sanna sig og stórleikur milli Liverpool og Arsenal.

  • 29. okt - Einkennileg yfirlýsing Fylkis og Blikar eru enn að leita

    Oct 29, 2026 · 22m

    Yfirlýsing Fylkis frá í gær er félagið tilkynnti að Heimir Guðjónsson væri á förum frá félaginu var einkennileg svo ekki sé meira sagt. Besta sætið fer yfir hana en Heimir er svo að skrifa undir hjá ÍA. Stuðullinn á Magnús Má Einarsson sem næsti þjálfari Blika lækkaði hratt eftir viðtal Vísis í gær. Liverpool slapp svo með skrekkinn í deildabikarnum.

  • 28. okt - Leitin að þjálfara Blika og umhverfissóðar eltir uppi

    Oct 28, 2026 · 22m

    Leit Blika að nýjum þjálfara er í hámarki og margir um hituna. Besta sætið fer yfir stöðuna í þjálfaramálunum. Ræðir einnig óvænt tap Arsenal í gær og svo er Orri Steinn orðaður við Everton. Passið ykkur svo ef þið kastið rusli út um gluggann. Besta sætið mun elta ykkur uppi.

  • 27. okt - Þjálfaramál Blika og Stjörnunnar og hvað með Carrick?

    Oct 27, 2026 · 21m

    Stjarnan er búin að tilkynna nýjan þjálfara formlega sem og nýjan yfirmann knattspyrnumála. Blikar eru í þjálfaraleit og standa á tímamótum. Michael Carrick lifði gærdaginn af sem þjálfari Man Utd og mun stýra liðinu um næstu helgi.

  • Veigar Páll fer yfir lyfjaprófsmálið

    Oct 27, 2026 · 9m

    Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í Bónusdeildinni. Veigar tók ADHD-lyf í tengslum við próflestur síðasta vor og það mældist í lyfjaprófi eftir leik með Njarðvík gegn Grindavík í úrslitakeppninni síðastliðið vor. Við hittum Veigar...

  • 26. okt - Leikmenn Man. Utd eru vandamálið og hvað gerist eiginlega hjá KA?

    Oct 26, 2026 · 24m

    Michael Carrick hefur væntanlega stýrt sínum síðasta leik með Man. Utd. Stuðningsmenn kenna honum ekki um lélegt gengi liðsins. Besta deild karla er búin og KA stendur frammi fyrir stórum spurningum á næstu vikum.

  • Amin Cosic - Frá Lengjudeild í Meistaradeild á 15 mánuðum

    Oct 24, 2026 · 12m

    Amin Cosic varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður með Noregsmeisturum Viking gegn Aston Villa á Villa Park. Aðeins 15 mánuðir eru síðan hann lék með Njarðvík í Lengjudeildinni hér á landi og uppgangur hans verið hreint lygilegur, enda kominn í Meistaradeildina með viðkomu í KR á skömmum tíma. Að baki er mikil vinna en Amin bætti...

  • 23. okt - Lyfjamál Veigars, hvort fellur KA eða Þór og jólasöngur

    Oct 23, 2026 · 25m

    Besta sætið er komið í hátíðarskap og tók nokkur vel valin jólalög. Lyfjamál Veigars Páls í Njarðvík var útskýrt í þaula, spáð í botnbaráttu Bestu deildar karla og einnig rennt yfir körfuboltann.

  • 22. okt - Ruglið hjá Man. Utd krufið og er Grindavík búið að ná botninum?

    Oct 22, 2026 · 21m

    Það er hver höndin upp á móti hver annarri hjá Man. Utd og frammistaðan gegn Como í gær var hreinasta hörmung. Grindavík og Stjarnan eru í leit að fyrsta sigrinum í körfunni og Aron Sigurðarson þarf að skora um helgina.

  • 21. okt - Van Dijk í ruglinu, ÍA fær að heyra það og hættið að skrifa á ensku

    Oct 21, 2026 · 20m

    Skammarbréf mótanefndar KSÍ til ÍA var stórskemmtilegt en ekki verður aftur spilað á einu sögufrægasta grasi Íslands. Meistaradeildin var frábær og leikmenn sem leggja skóna á hilluna og skrifa það á ensku fá skammir.